Flest fyrirtæki leggja áherslu á ímynd þegar horft er til útlitshönnunar. Það er hugsað fyrir því hvaða áhrif lýsing og efnisval innréttinga hefur á viðskiptavini. Lykt er dæmi um eitthvað sem skynfæri okkar nema alltaf og hefur mikil áhrif á heildarupplifun á hverjum stað.
Hver þekkir ekki áhrifin sem lykt í nýjum bíl hefur á flest okkar? Eða lykt af greni á jólum. Mörg af stærstu vörumerkjum heims hafa í mörg ár unnið með lykt sem hluta af heildarímynd sinni og þá er lykt notuð til að tengja undirmeðvitund okkar við merkið. Kjarnaolíur eru notaðar bæði til að örva og róa okkur og eru vel þekktar sem slíkar en geta þær nýst í verslun eða á skrifstofu? Air/Aroma er leiðandi fyrirtæki á svið lyktarmarkaðssetningar og vinnur með mörgum þekktustu vörumerkjum á sviði gistinga, tískuhúsa og jafnvel bílaframleiðenda. Kynntu þér Air/Aroma hér: http://www.air-aroma.com Eða hafðu samband við okkur og við getum leitt þig í sannleikann um hvernig Air/Aroma getur nýst þínu fyrirtæki. |