Epicurean skurðarbrettin eiga sér upphaf í fyrirtæki sem sérhæfði sig í byggingu umhverfisvænna hjólabrettapalla. Viðarefnið sem notað var í pallana er ótrúlega sterkt og endingargott og þar að auki hæft til notkunar í matvælaiðnaði og þolir uppþvottavélar svo Dave og félagar fóru að sníða skurðarbretti úr afgöngum til að gefa vinum og vandamönnum. Eftispurnin jókst og Epicurean Cutting Surfaces fæddist. Þetta var árið 2004 og síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og dafnað, skurðarbrettin og áhöldin eiga sér aðdáendur um allan heim og úrvalið eykst með hverju árinu.
Brettin frá Epicurean þola uppþvottavél, allt að 176°C hita og fara mjúkum höndum um hnífana þína. Sölustaðir: Kokka Progastro hafðu samband ef þú vilt bætast í hópinn! |