Heiðarleiki, gegnsæi og metnaðarfullur ásetningur um að láta gott af sér leiða í veröldinni eru undirstaða danska hönnunarfyrirtækisins The Organic Company sem stofnað var af Joy Vasiljev árið 2007.
Síðan þá hafa Joy og samstarfsfólk hennar þróað fjölhæfa línu af lífrænum vefnaðarvörum fyrir heimili, sem í dag innifelur lín fyrir baðherbergi og eldhús, barnavörur jafnt sem teppi og tuðrur. Hönnunarspeki fyrirtækisins byggir á skandinavískri fagurfræði sem einblínir á form og gæði. Vörurnar eru oft einkenndar af sérstæðum stærðum, efnisvali og fjölbreytilegum notkunarmöguleikum. Vöruhönnunin er unnin í samstarfi við ýmsa danska textílhönnuði. Allar framleiðsluvörur The Organic Company eru gerðar úr lífrænni bómull og frá árinu 2010 hefur öll framleiðslan verið vottuð undir hinum alþjóðlega GOTS (Global Organic Textile Standard) staðli. Staðallinn tryggir neytendum ekki bara að allur efniviður sé lífrænt ræktaður heldur einnig að alþjóðleg réttindi verkamanna séu virt og að engin eitruð, krabbameinsvaldandi eða mengandi efni séu notuð við framleiðsluna. Forsenda GOTS vottunarinnar eru ítarlegar verklagsreglur og eftirlit sjálfstæðra vottunaraðila sem taka út og prófa alla virðiskeðju fyrirtækisins frá bóndanum sem ræktar lífrænu bómullina, til spunaverksmiðjunnar og litunarfyrirtæksisins og þaðan alla leið til innflytjanda. Sölustaðir: Kokka Netverslun Krabbameinsfélagsins mena.is Systrasamlagið hafðu samband ef þú vilt bætast í hópinn! |